þetta er bara síða um hitt og þetta bara það sem manni dettur í hug í það og það skiptið ,Ætla halda svoldið utan um ræktina hvernig gengur og svona mætingar og fleira.
29. desember 2014
Ljúfa líf
Jæja fór að versla áramótamatinn áðann ætla elda lambafille með öllu tilheyrandi svo verður heimtilbúinn ís og ávextir á eftir .Það rignir ansi mikið hérna suður með sjó í Innri- Njarðvíkinni sem er ágætt vonandi fer sem mest af þessum klaka sem er á götum og gangstéttum . Er að fara henda fiskirétt í ofninn ýsa í Toscanasósu umm gott eftir allt kjötátið meðan ýsan mallar í ofninum ætla ég að sauma smá út svo spennandi mynd sem ég er að gera sýni ykkur hana fljótlega :)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli